Súrdeigsbrauð eru vegan þrátt fyrir að innihalda mjólkursýru

22

Súrdeigsbrauð eru vegan þrátt fyrir að innihalda mjólkursýru

Mjólkursýrubakteríur (af ættbálknum lactobacillus) geta framleitt mjólkursýru með gerjun.

Í iðnaði er mjólkursýrugerjun framkvæmd með því að mjólkursýrubakteríur breyta einföldum sykrum, s.s. glúkósa, súkrósa eða galaktósa í mjólkursýru.

Margir velta fyrir sér hvort brauð sem innihalda mjólkursýru geti verið vegan. Því er til að svara að mjólkursýrubakteríur eru engan veginn einskorðaðar við að brjóta niður mjólkursykur heldur hvaða einfaldar sykrur sem er. Súrdeigsbrauð er gert með því að gerja deig með mjólkursýrubakteríum og gersveppum sem fyrirfinnast í náttúrunni.

Því er þeim sem aðhyllast vegan lífsstíl alveg óhætt að borða súrdeigsbrauð þrátt fyrir að það innihaldi mjólkursýru.

Deila: