Bakarar selja brjóstabollur til styrktar krabbameinsrannsóknum

10
Ma

Bakarar selja brjóstabollur til styrktar krabbameinsrannsóknum

Félagsmenn í Landssambandi bakarameistara, LABAK, efna til sölu á brjóstabollum í bakaríum um allt land um mæðradagshelgina, dagana 11.-14. maí.

Salan á bollunum er til stuðnings styrktarfélaginu Göngum saman, en félagið styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og úthlutar styrkjum í október ár hvert. Sala á brjóstabollum er orðinn árviss viðburður í bakaríum um mæðradagshelgina og eru bakarí félagsmanna LABAK skreytt með veggspjöldum með mynd af bollunni í tilefni verkefnisins.

Jóhannes Felixson, formaður LABAK, segir brjóstabolluna í ár vera bollaköku með gómsætu smjörkremi sem minnir á brjóst.

„Við höfum undanfarin sex ár efnt til sölu á brjóstabollum á mæðradagshelginni til stuðnings Göngum saman í þeim tilgangi að leggja lið mikilvægum rannsóknum á brjóstakrabbameini. Á þessum sex árum hefur tekist að safna um átta milljónum króna og nú stefnum við að því að bæta um betur. Við höfum hvatt sem flesta bakara til að taka þátt enda munar um minna fyrir rannsóknirnar að fá þennan stuðning frá LABAK.

Það er ekki amalegt fyrir okkur bakarana að geta boðið landsmönnum upp á bragðgóðar bollur um leið og við styrkjum gott málefni.  Við hvetjum  fyrirtæki og stofnanir til að bjóða starfsmönnum upp á bollur með kaffinu á fimmtudag og föstudag og síðan er tilvalið að taka þátt í mæðradagsgöngum sem verða um allt land og gæða sér á brjóstabollum að göngu lokinni.”


Styrktarfélagið Göngum saman leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar til heilsueflingar. Félagið efnir til vorgöngu fyrir alla fjölskylduna víða um land á mæðradaginn sunnudaginn 14. maí og hefjast allar göngur kl. 11. www.gongumsaman.is

Eftirtalin bakarí selja brjóstabollur:

Bakarameistarinn, Austurveri, Glæsibæ, Húsgagnahöllinni, Mjódd og Suðurveri í Reykjavík,  Smáratorgi í Kópavogi og Flatahrauni í Hafnarfirði
Bakarinn, Ísafirði
Björnsbakarí, Austurströnd, Dalbraut, Fálkagötu og Hringbraut í Reykjavík
Brauða- og kökugerðin, Akranesi
Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co., Akureyri
Geirabakarí, Borgarnesi
Guðnabakarí, Selfossi
Hjá Jóa Fel., Garðatorgi í Garðabæ, Holtavegi, JL húsinu og Kringlunni í Reykjavík og Smáralind í Kópavogi
Kökuhornið, Bæjarlind í Kópavogi
Kökuval, Hellu
Mosfellsbakarí, Háleitisbraut í Reykjavík og Háholti í Mosfellsbæ
Okkar bakarí, Iðnbúð og Strikinu í Garðabæ
Sauðárkróksbakarí, Sauðárkróki
Sigurjónsbakarí, Keflavík
Stofan bakhús, Vestmannaeyjum
Sveinsbakarí, Arnarbakka, Engihjalla og Skipholti í Reykjavík
Valgeirsbakarí, Njarðvík
Vort daglegt brauð, Strandgötu í Hafnarfirði

Deila: